Þórður okkar
Dagsetning
23. febrúar 2012
Leitarbox

27.10.2011 08:15:44 / Birna Willard

til hamingju með 25 ára afmælið

Ég sendi kveðjur til himna í dag....!

Elsku Þórður minn. Til hamingju með afmælið á himnum. 

Vonandi sjáum við sem flesta þann 3 nk á Kárastígnum :-)

Knús á alla

» 2 hafa sagt sína skoðun

21.10.2011 10:21:41 / Birna Willard

afmælisdagurinn nálgast

Elsku ástvinir

Nú líður senn að því að Þórður á afmæli. Já elsku drengurinn verður 25 ára 27. Október n.k.
 
Ég verð því miður ekki heima á afmælisdaginn. En við ætlum samt að halda uppá afmælið hans. Við ætlum að halda smá teiti á Kárastígnum viku eftir afmælið. Þann 03. Nóv. Kl.16-20.

Okkur hefur lengi langað til að hitta vini og samferðafólk hans Þórðar. Þó að hann hafi bara verið 17 ára þegar hann kvaddi okkkur, þá átti hann óskaplega marga vini og kunningja.

Ég ætla að segja ykkur tvær skemmtilegar sögur af Þórði frá því rétt aður en hann fór.

 Hann var búinn að vinna á Torvaldsen bar í nokkra mánuði sem “glasabarn” . Þá var það vinsælasti staðurinn á svæðinu. Hann sagði við mig einn daginn. “mamma það heilsa mér nánast allir á leiðinni í vinnuna, ég þekki bara næstum því alla, og það býr allt fræga fólkið í 101 og við”

Einn daginn þegar hann kom heim úr skólanum sagði hann “ Ég er eiginlega hættur við að fara í lögfræði, ég er að hugsa um að fara í sálfræði” Já sagði ég” Það er nefnilega þannig að stelpurnar í skólanum (Hraðbraut) eru alltaf að trúa mér fyrir leyndarmálum” Já þú ert svo góður að hlusta karlinn minn, sagði ég þá” Hann svaraði um hæl, “Já þessvegna fékk ég tvö eyru, en bara einn munn”

Það er merkilegt að fylgjast með minningarsíðunni hans Þórðar sem skólasystkini hans opnuðu, eftir andlátið. Það eru komnar 104.399 heimsóknir núna þegar þetta er skrifað og í dag hafa 19 manns heimsótt síðuna.

Elsku fólk got væri ef þið létuð mig, Birnu eða Össur vita hvort þig getið komið til okkar í tilefni af 25 ára afmælinu. Skólasystkinin, körfuboltastrákarnir, vinnufélagarnir, og bara allir þeir sem þekktu Þórð eru hjartanlega velkomin. Við munum taka vel á móti ykkur og hlökkum mikið til.

Netföngin okkar: thorunn@norvik.is birna@e4.is ossurw@e4.is

Takiði vel utan um ykkur sjálf.

Tóta mamma hans Þórðar

» 5 hafa sagt sína skoðun

27.10.2010 08:12:20 / Birna Willard

24 ára afmælisdagurinn

jæja í dag er 27 oktober - dagurinn hans Þórðar.

Við fórum með krakkana upp í garð í gærkvöldi með hjartað á leiðið í ofboðslega fallegu veðri. það var logn, tunglskin, stjörnubjart og norðurljósin dönsuðu um himininn. Þetta var stund til að muna. Stund sem ég mun geyma í hjartanu.

Við erum viss um að þú hafir slengt þessu á himininn fyrir okkur í tilefni dagsins :-)

Elsku bróðir til hamingju með daginn á himnum, ég set reykelsi út og sendi kveðjur til þín í dag xxx


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.04.2010 09:06:40 / Birna Willard

6 ár í dag

Ég vaknaði í nótt klukkan 3 og lá vakandi góða stund. Þetta var um það leyti sem Þórður var á rúntinum á Dalvík fyrir 6 árum síðan, syngjandi sæll og glaður. Hann var í góðra vina hóp, veðrið var milt og fallegt vorveður og lífið blasti við honum..........

Ég hugsaði með mér þar sem ég lá uppi í rúmi með Calum Bjarma hrjótandi við hliðina á mér að tíminn læknar ekkert öll sár. Alltaf um miðjan april, síðan Þórður dó, verð ég voðalega döpur og meyr. Sá tími er tími sorgar og sorgin er ekkert minni núna 6 árum síðar. Málið er bara að ég lifi með henni og mun gera alla tíð.

Kæru vinir, við Össur ætlum í kirkjugarðinn í kring um hádegi með eitthvað fallegt á leiði litla bróður okkar. Það getur ekki nokkur maður ímyndað sér hversu erfitt það er bara að skrifa þessi orð.....

Verum góð við fólkið okkar og vakandi fyrir vanlíðan, depurð og merkjum um þunglyndi. Það á enginn að þurfa að takast á við missi og sorg á þennan hátt!

Knús á ykkur,

Birna systir


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.10.2009 09:10:32 / Birna Willard

23 ára í dag


Ég settist niður til að skrifa hér nokkrar línur áður en ég fer í kirkjugarðinn með eitthvað fallegt á leiðið þitt en það sönglar í hausnum á mér lag....... Ég set hér inn textann svo að við getum öll sungið hástöfum í dag með Þórði.

Elsku Þórður ég vildi að ég gæti tekið þetta lag með þér hátt - og air guitar með :-D




I got my first real six-string
Bought it at the five-and-dime
Played 'til my fingers bled
It was summer of '69

Me and some guys from school
Had a Band and we tried real hard
Jimmy quit and Jody got married
I shualda known we'd never get far

Oh when I lock back now
That was seemes to last forever
And if I had the choice
Ya - I'd always wanna be there
Those were the best days of my life

(CHORUS)

Ain't no use in complainin'
When you got a job to do
Spent my evenin's down at the drive in
And that's when I met you

Standin on a mama's porch
You told me that you'd wait forever
Oh and when you held my hand
I knew that it was no or never
Those were the best days of my life

(Chorus) Back in Summer of '69

Man we were killin' time
We were young and restless
We needed to unwind
I guess nothin' can last forever, no

And now the times are changin'
Look at everything that's come and gone
Somethimes when I play that old six-string
I think about ya wonder what went wrong

Standin' on a mama's porch
You told me it would last forever
Oh the way you held my hand
I knew that it was now or never
Those were the best days of my life

(Chorus) Back in summer of '69


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.04.2009 11:09:14 / Birna Willard

5 ár er langur tími............

.......... langur tími þegar að maður saknar og sér eftir einhverjum.

Í dag eru 5 heil ár síðan Þórður bróðir kvaddi þennan heim. Ég sakna hans jafn mikið í dag og ég gerði rétt eftir að ég missti hann. Það verður samt einhvern vegin bærilegra að lifa án hans.

Það sækir að manni samviskubit ef að maður gleymir honum í einn dag eða man ekki eftir einhverju í sambandi við hann, en ég hef heyrt talað um að fólk finni fyrir þessu sem misst hefur mikið.

Það er eðlilegt að gleyma með tímanum. Gleyma hægt og rólega minningum sem sátu svo fast í manni einu sinni. Það er vont og sárt að gleyma en fullkomlega eðlilegt!

Ég á mína sérstöku daga sem ég nota til að "muna". Þá tek ég fram myndaalbúm, spila tónlist, þefa af bolnum hans eða horfi á videóspólur. Ég græt og hlæ og kveiki á minningunum mínum aftur. Það er yndislegt og mér finnst ég hafa hann nær mér þá daga........

Elskulega fólk, verið góð við hvort annað og vonandi hjálpa þessi skrif mín einhverjum sem gengur í gegnum það sama.

Birna systir


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.12.2008 22:27:02 / Birna Willard

Jólin jólin .......

Jæja þá eru jólin komin aftur og enn er erfitt að sætta sig við að hafa ekki Þórð hjá sér. Við mamma fórum í kirkjugarðinn áður en hún fór til Ítalíu og settum á leiðið ljós.

Í morgun kveikti ég á reykelsi og setti það út fyrir, eins og ég geri oft þegar mér verður hugsað til Þórðar. Nokkru seinna er bankað og vinur Calum Bjarma er fyrir utan að spyrja eftir honum. Eftir að hafa sagt honum að Calum sé ennþá í rúminu og að hann geti komið aftur eftir klukkutíma segir hann:

"af hverju ertu með reykelsi úti?"

Ég svara:

"af því að ég er að senda kveðjur til himna, hann Þórður bróðir minn er þar"

Þá svarar sé stutti:

"amma sendir nú bara kveðjur í útvarpinu"

hahahahah..... Krúttlegt ha? Hann heldur pottþétt að ég sé biluð!

Elskurnar, ég sendi jólakveðjur til himna í dag með reyk en hér sendi ég ykkur öllum sem lesið  þetta blogg, kveðjur og kossa og óska þess að öllum líði vel á sál og líkama.

Knús og klemmur, Birna systir


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.10.2008 10:51:27 / Birna Willard

22 afmælisdagurinn

Engillinn

Engill svífur yfir salinn
á hvítum vængjum.
Það færist ró og friður í sál viðstaddra,
þeir sitja og lúta höfði í hljóðri bæn,
tár glitra á hvörmun.
Engillinn brosir þegar hann sér
hvers hann er megnugur.
"Ekki hafði ég slík áhrif meðan ég var á lífi."
segir hann við sjálfan sig
og hugsar til þess
þegar hann tók ákvörðun um
að sigla yfir móðuna miklu.
Hann snertir blíðlega vanga móður sinnar,
sem situr á fremsta bekk
og horfir tárvotum augum
á kistuna umlukta fallegum blómum,
og hvíslar í eyra hennar,
"Ég elska þig mamma mín"

Ókunnur höfundur
 


» 9 hafa sagt sína skoðun

26.04.2008 11:24:07 / Birna Willard

4 ár eru langur tími.....

Já í gær, 25 april voru 4 ár liðin síðan hann Þórður bróðir kvaddi þennan heim. Við mamma fórum í kirkjugarðinn með hjarta klætt rósum, rós frá ömmu Birnu og nokkrar rósir frá Disco fjölskyldunni. Við sjænuðum leiðið aðeins til og ræddum hugmyndir af legsteini.

Legsteinn.

Þetta er svo endanlegt orð. Legsteinn. Ég held að ástæðan fyrir því að ekkert okkar er að pressa á að blessaði legsteinninn verði kláraður og settur upp, er akkurat sú að þá er einhvernvegin eins og málið sé búið. Leiðið orðið fínt, tilbúið, klárað, eittthvað svo endanlegt. Búið.

Maður heldur í Þórð á einhvern voðalega skrítinn hátt með því að vera sífellt að velta fyrir sér þessum "endapungti" sem að legsteinn virðist vera. Á hann að vera stór, lítill, áberandi, látlaus eða frumlegur? Á sinn hátt var Þórður allt þetta og ég veit að það sem við setjum á leiðið hans mun vekja hjá manni fallegar minningar um stórkostlegann ungann mann.

Ég sakna þín elsku ástarengillinn minn,

Birna systir




 

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 14:00:48 / Birna Willard

Kvitti tuð.....

Já það er svo mikil synd að fólk skuli ekki gefa sér tíma í að kvitta smá.

Hér erum við með opnar pælingar um tilfinnangar okkar og hugsanir og það minsta sem að fólk getur gert er að skilja eftir spor við slóðina hjá manni?

Vel meint skammar ræða :-)

Fallegt af þér að kvitta Solla og takk fyrir fallegar hugsanir xxx

Já Margrét það er sko hellings Þórður í honum Calum mínum. Hann er flottur eins og frændi og er meira að segja byrjaður í Körfunni ;-)

Knús og klemmur,

Birna systir


» 10 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 20:49:09 / Birna Willard

Hakúnamatata

jæja bróðir ég leit loksins við hjá þér.

gerði mér ferð suður til að vera hjá þér og fjölskyldunni okkar á afmælisdaginn þinn. við stoppuðum dágóða stund hjá þér og fíniseruðum hjá þér gröfina ( uff hvað það er sárt að skrifa gröf hjá ekki eldri dreng en þú varst) við fengum nokkrar hugmyndir um hvernig legsteinninn gæti litið ut en ég held að þú verðir ánægður með það sem við loksins ákveðum að setja hjá þér. ég ræði stundum um þig við viktor, það er hrikalegt að hann hafi ekki fengið að kynnast þér elsku kall.

það er svo margt sem ég þarf að tala um við þig :( vildi oska að ég hafði gert meir af því þegar þú varst hér. ef þú átt ráð og styrk þá er það vel þegið.

elska þig litli bróðir.

kv öw

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.10.2007 09:07:02 / Birna Willard

Afmælið þitt....

Þá er komið að því, 27 oktober er runnin upp. Þú hefðir orðið 21 árs í dag
elsku kallinn minn.

Við Calum Bjarmi vorum að ræða um þig og afmælið þitt og veltum mikið
fyrir okkur hvort að þú ættir afmæli hjá Guði? Ertu 21 árs í dag eða
verður þú alltaf eins og þú varst þegar þú fórst, bara 17?

Þetta var mikið rætt, fram og til baka og nú erum við búin að ákveða
hvernig þetta hljóti að vera.

Við höldum að þú eigir afmæli en verðir samt alltaf jafn gamall og síðast
þegar við sáum þig. Á himnum verður nefninlega enginn gamall en allir
halda upp á afmælið sitt með mikilli veislu. Veislu þar sem vinir og
ættingjar á himnum hittast og gleðjast saman.

Svona eru barnslegar hugmyndir frænda þíns um hvernig himnaríki hljóti að
vera. Það er gott að hugsa þetta svona og sjá þig fyrir sér brosandi út að
eyrum með hatt og partý flautu :-)


Sjáiði hann ekki fyrir ykkur? Svo glaðan, hressan og fallegan.



Til hamingju með daginn í himnaríki elsku frændi minn, þinn Calum Bjarmi


Sakna þín ástarengill,

Birna systir




» 3 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 14:31:48 / Birna Willard

Afmælisdagur á morgun

Jæja þá er að koma að því. Afmælisdagurinn hans Þórðar er á morgun. Hann hefði orðið 21 árs þessi elska.

Við fjölskyldan ætlum í kirkjugarðinn á morgun í kringum hádegi til að tendra ljós á leiðinu hans. Svo ætlum við að eyða deginum saman. Saman í rólegheitunum.

Ef þið viljið koma líka þá er það velkomið, við verðum uppfrá milli 12-13. Það er oft gott að hittast bara til að taka utan um hvort annað. Sjáumst

 

Kv, Birna systir


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 20:06:31 / Birna Willard

2 myndir fyrir ykkur

Jæja þá er mest tæknilega fatlaða systirin búin að setja inn tvær myndir af bróður sínum hér til hliðar. Þetta tók mig heilan dag en loksins loksins hafði ég þetta af og er einstaklega ánægð með mig :-)

Þetta hefur staðið til lengi og já það er von er á fleyri myndum. Ég veit reyndar ekki alveg hvenar það hefst að koma þeim hingað en allt hefur sinn tíma og ég vona að þið bíðið róleg og glöð.

Allt gott að frétta af mér, er að flytja með fjölskylduna mína í Vogahverfi og það líður ekki sá dagur að mig vanti ekki Þórð til að hjálpa mér með hin ýmsu mál. Mig langar líka oft til að kjafta bara við hann og knúsa hann og segja honum hvað ég elska hann mikið. Mikið ofboðslega sakna ég hans. 

Verum dugleg að segja fólkinu okkar hvað við elskum það. Það er svo gott að geta sagt ég elska þig og mér þykir vænt um þig.

Sakna þín ástarengillinn minn,

Birna systir


» 15 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 08:42:12 / Birna Willard

25 april 2007

Í dag er mikill sorgardagur. Það eru 3 ár liðin síðan litli bróðir minn fór frá okkur. 3 heil ár.

 

Ég hugsa til hans á hverjum degi og langar reglulega til að hringja í hann til að spjalla. Ég er viss um að ég er ekki ein um það.

Ég ætla í kirkjugarðinn í dag uppúr hádegi  með blóm fyrir pabba og ömmu Birnu.

 

Elsku bróðir, Eg sakna þín meira en hægt er að lýsa, ástarengillinn minn.

Birna systir

 

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Heimsóknir
Í dag:  7  Alls: 107529